Hreyfðu þig í gleði, ekki sektarkennd
Hreyfing er gjöf, ekki skylda. Hún er leið til að tengjast líkamanum, losa um orku, finna kraft og léttleika — ekki leið til að refsa sjálfum sér. Þegar við hreyfum okkur í gleði breytist allur tónninn: við hlustum á líkamann í stað þess að berja hann áfram.
Breyting á viðhorfi
Oft tengjum við hreyfingu við „þarfir“ eða „skyldu“. Við segjum okkur að við verðum að fara í ræktina, út að hlaupa eða einhverja hreyfingu sem okkur finnst kannski leiðinlegt í. En þegar við snúum þessu við og spyrjum: „Hvað myndi líkami minn vilja í dag?“ þá breytist orkan.
Sumir dagar kalla á kyrrð — að ganga hægt, teygja sig eða stunda jóga. Aðrir dagar bjóða upp á kraft — dans, hlaup eða líkamsþjálfun sem reynir töluvert á og þá er það alveg geggjað! En það sem skiptir máli er að hreyfingin sé í samhljómi við orkuna þína, ekki á móti henni.
Líkamsvitund í stað aga
Þegar við hlustum á líkama okkar þróum við líkamsvitund. Það þýðir að við tökum eftir merkjum hans: spennu, þreytu, orku eða gleði. Þessi tenging er grunnurinn að heildrænni heilsu.
Agi er stundum misskildur. Agi þarf ekki að þýða að þrjóskast áfram. Sannur sjálfsagi felst í því að virða eigin mörk sem líkaminn setur okkur og hlusta á þau. Þegar við virðum líkama okkar með ást, þá vex löngunin til þess að hreyfa sig náttúrulega. Það er ekki þar með sagt að við eigum að sleppa því að hreyfa okkur, heldur hlusta, hvað vill og þolir líkaminn minn í dag?
Hreyfing sem nærir
Veldu hreyfingu sem nærir, ekki tæmir. Hreyfingu sem lætur þig brosa og líða vel, ekki brenna út.
Hugmyndir að hreyfingu sem byggir á gleði:
– Dansa heima við uppáhaldslagið þitt, það getur verið sniðug hugmynd að búa til stuttan lagalista með ca 4-5 lögum sem þú elskar að dilla þér við. Hvert lag er ca 3 mínútur og með 5 lögum þá ertu komin með 15 mínútur í ljúfu dansflæði! Stundum koma líka dagar þar sem eitt lag dugir, þá er það allt í lagi.
– Göngutúr í náttúrunni með meðvituðum andardrætti, svokallaðar “slow pace” göngur eða göngur án þess að rífa púslinn upp er stundum það sem þarf. Svo er einnig hægt að taka kröftugar göngur í náttúrunni eða jafnvel með smá upphækkun eða fjallgöngu, það sem að þjónar þér þann dag.
– Jóga, teygjur eða Yin jóga fyrir þá daga sem þú þráir ró. Teygjur eru góðar til þess að losa um uppsafnaða spennu í líkamanum og langar yin jóga teygjur, sem eru um 3-5 mínútur hjálpa þér að losa um spennu alla leið niður í bandvefi líkamans.
– Sund eða köld sjóböð fyrir endurnýjun. Sund er sú hreyfing sem flestir geta stundað. Hvort sem þú syndir rólega nokkrar ferðir af bringusundi eða tekur kröftuga skriðsundsæfingu.
– Hreyfa sig með börnunum eða gæludýrinu –Farðu út að leika! Að hreyfa sig með börnum getur verið mjög skemmtilegt, fara saman út á róló, í eltingarleik, feluleik eða í göngu í náttúrunni. Flest börn elska líka sund. Svo er hægt að fara með ferfættu vinum okkar í göngutúr. Oft er einng félagsleg næring í því að fara út með hundinn, því þá oft þá hittir þú annað hundafólk, fólk staldrar við og spjallar og við það geta myndast tengsl.
Þegar við tengjum gleði við hreyfingu breytist hún oft úr því að vera verkefni sem þarf að klára yfir í skemmtilega daglega rútínu. Gott er að miða við 20 mínútur af einhverskonar hreyfing á dag.
Hreyfing sem sjálfsumhyggja með þakklæti
Í heildrænni nálgun er hreyfing ekki aðeins líkamleg heldur einnig andleg. Það er okkar leið til að virkja orkuna, hreinsa hugann og finna fyrir innri ró. Eftir hreyfingu má staldra við, loka augunum og segja: „Takk, líkami, fyrir að bera mig í gegnum daginn.“
Svona þakklæti í okkar eigin garð styrkir sambandið milli líkama og hugar og það er oft þar sem raunveruleg góð heilsa byrjar.
🌺
Þegar við sleppum kröfunni um að „standa okkur“ í hreyfingu og byrjum að hreyfa okkur í gleði, þá getur allt byrjað að breytast. Við verðum frjáls, orkan flæðir og okkur fer að líða vel líkamlega. Það er þá sem við förum að sjá hreyfingu sem hluta af lífinu sjálfu en ekki eitthvað sem við neyðumst að gera af skyldurækni.

