


Sagan mín
Fyrir nokkrum árum lenti ég í örmögnun og lífið neyddi mig til að hægja verulega á mér. Líkaminn sagði einfaldlega stopp. Það sem áður virtist einfalt varð erfitt og ég þurfti að læra upp á nýtt hvernig ég gæti hugsað um heilsuna mína — líkamlega, andlega og sálrænt.
Bataferlið hefur ekki verið bein lína. Sumir dagar eru enn orkuminni en aðrir, en munurinn í dag er sá að endurheimtin er betri og köstin styttri. Ég hef lært að hlusta betur á líkamann minn, virða mörkin mín og taka lítil skref í einu.
Í byrjun gat ég ekki farið beint í mikla hreyfingu. Ég byrjaði á stuttum og hægum göngutúrum úti í náttúrunni. Að komast út í ferskt loft, finna jörðina undir fótunum og leyfa taugakerfinu að róast varð hluti af minni eigin lækningu. Smátt og smátt fór líkaminn að þola meira og ég fann aftur tengingu við styrkinn minn.
Þessi reynsla vakti hjá mér djúpan áhuga á heilsu, taugakerfinu, næringu og heildrænni vellíðan. Ég byrjaði að stunda og læra jóga og hef meðal annars lokið I AM Yoga Nidra™ Advanced Training hjá Kamini Desai sem og 50 klukkustunda námi í Yin Yoga. Í dag kenni ég endurnærandi Yoga Nidra tíma tvisvar sinnum í viku þar sem áherslan er á djúpa slökun, hvíld og að róa taugakerfið.
Meira
Ég ákvað því einnig að skrá mig í nám í heilsumarkþjálfun hjá Institute for Integrative Nutrition (IIN) til að læra betur hvernig ég get stutt aðra sem hafa misst heilsuna sína og eru að leita leiða til að finna jafnvægi, orku og lífsgleði aftur.
Í dag hef ég, með orkustjórnun og mikilli meðvitund, náð betri stjórn á heilsunni minni — ég þarf þó enn að hlusta vel á líkamann og passa vel upp á orkuna mína og með því get ég átt verulega góða daga. Það er eitthvað sem ég held að margir sem hafa gengið í gegnum örmögnun skilji mjög vel.
Mig langar að deila minni vegferð og reynslu með þér, því ég veit að það eru einstaklingar þarna úti sem hafa misst heilsuna sína og hafa enga hugmynd um hvar þeir eiga að byrja eða hvernig best sé að nálgast endurheimt. Ég er þakklát fyrir að hafa fundið verkfæri sem hafa hjálpað mér — verkfæri og reynslu sem ég get nú deilt áfram meðal annars í þessu bloggi.
Við megum samt ekki gleyma því að við erum öll mismunandi. Það sem hentar einum hentar ekki alltaf öðrum. En stundum byrjar breytingin einfaldlega á því að vera tilbúin að prófa eitthvað nýtt. Maður veit sjaldan hvað virkar fyrr en á reynir.
Ef þú hefur áhuga á að vinna með þína heilsu, fá betri líðan, jafnari orku, heilbrigðari lífsvenjur og meiri meðvitund um hvað hentar þér og hvað hentar ekki, þá hvet ég þig til að senda mér skilaboð — og við sjáum hvort við getum unnið saman í heilsumarkþjálfun.
Ég hvet þig líka til að lesa bloggið mitt og prófa þær leiðir sem þar eru í boði. Hvort sem það er að breyta venjum sem þjóna þér ekki lengur, næra líkamann betur, prófa vítamín og bætiefni, borða hreinni fæðu eða draga úr því sem tekur frá þér orkuna.
Ég hvet þig líka til að verja meiri tíma úti í náttúrunni, hægja á, fara meira inn á við og hlúa að andlegri orku og innri ró. Fyrir suma getur það verið að drekka cacao í nærveru, stunda jóga eða hugleiðslu, anda dýpra eða einfaldlega gefa sér meiri tíma til að vera.
Stundum byrja stærstu breytingarnar á litlum skrefum — og með meiri meðvitund um hvað líkaminn okkar er raunverulega að reyna að segja okkur.



