29.05.2026

Matur er meira en bara hitaeiningar. Hann er upplýsingar fyrir líkamann okkar. Það sem við borðum hefur áhrif á orku, meltingu, hormón, ónæmiskerfið, húðina, heilann og hvernig okkur líður frá degi til dags.
Í heimi þar sem hillurnar eru fullar af tilbúnum vörum getur verið erfitt að átta sig á hvað er raunverulega nærandi matur og hvað er mikið unnin matvara. Markmiðið er ekki fullkomnun heldur meiri meðvitund. Að velja oftar mat sem líkaminn þekkir.
Hvað er hrein fæða?
Hrein fæða (e. whole foods) er matur sem er eins nálægt sínu náttúrulega formi og mögulegt er. Það er matur sem hefur lítið verið breytt, inniheldur næringarefni og er oft án langra innihaldslýsinga.
Dæmi eru grænmeti, ávextir, ber, baunir, linsur, hnetur, fræ, egg, fiskur, hreint kjöt, heilkorn, jurtir, krydd og óunnin fita eins og ólífuolía og avókadó.
Einföld regla: Ef amma þín hefði þekkt innihaldsefnin sem mat — þá er líklegra að líkaminn þinn geri það líka.
Hvað er unnin matvara?
Það er mikilvægt að muna að ekki öll vinnsla er slæm. Að frysta ber, sjóða baunir eða búa til jógúrt er líka vinnsla.
Það sem við viljum sérstaklega passa okkur á er mikið unnin matvara (e. ultra-processed foods). Þetta eru vörur sem innihalda oft mikið magn viðbætts sykurs, gervilitarefni, bragðefni, sætuefni, mikið unnar olíur, ýruefni og aukefni ásamt litlu magni trefja og næringar.
Dæmi geta verið gosdrykkir, sælgæti, margar tilbúnar kökur og kex, skyndibiti, mikið unnið morgunkorn og pakkamatur með mjög löngum innihaldslýsingum.
Lestu innihaldslýsinguna
Ekki horfa bara framan á pakkann. Orð eins og „náttúrulegt“, „fitness“, „próteinríkt“ eða „hollt“ segja ekki alltaf alla söguna.
Snúðu vörunni við og spurðu: Kannast ég við innihaldsefnin? Myndi ég eiga þessi efni heima í eldhússkápnum mínum? Er sykur eitt af fyrstu innihaldsefnunum? Er listinn mjög langur?
Af hverju skiptir þetta máli?
Mikið unnin fæða getur gert okkur erfiðara fyrir að hlusta á náttúruleg skilaboð líkamans. Rannsóknir hafa tengt mikla neyslu mikið unninnar fæðu við minni næringargæði mataræðis, meiri sykurlöngun, sveiflur í orku, þyngdaraukningu og verri efnaskiptaheilsu.
Líkaminn þarf næringu til að starfa vel — ekki bara fyllingu.
Matur og heilinn – áhrif á einbeitingu og hegðun
Heilinn okkar notar næringarefni á hverjum degi. Börn og fullorðnir geta verið mismunandi næm fyrir því sem þau borða.
Sumar rannsóknir hafa sýnt tengsl milli ákveðinna gervilita og aukefna og aukinnar ofvirkni eða einkenna hjá sumum börnum sem eru viðkvæm fyrir slíku.
Það þýðir ekki að matur sé eina orsökin fyrir ADHD eða hegðunaráskorunum. En hjá sumum getur mataræði verið einn hluti af stærri mynd.
Heimildir og frekari lestur
Harvard T.H. Chan School of Public Health – Processed Foods and Health
McCann o.fl. (2007), The Lancet – Food additives and hyperactive behaviour in children
University of Southampton – Research on food additives and hyperactivity in children
Harvard Health Publishing – Ultra-processed foods and health
24.05.2026

Cacao hefur verið notað í þúsundir ára sem heilagur drykkur í mörgum menningarheimum, sérstaklega í Mið- og Suður-Ameríku. Fyrir Maya og Azteka var cacao ekki bara matur — heldur planta sem tengdi fólk við hjartað, náttúruna, samfélagið og andlega næringu.
Í dag upplifa margir cacao sem hlýjan, róandi og „hjartaopnandi“ drykk sem hjálpar okkur að hægja á, tengjast betur sjálfum okkur og skapa meiri nærveru.
Hvað gerir cacao svona sérstakt?
Ólíkt hefðbundnu kakói sem oft er mikið unnið og sykrað, inniheldur hreint ceremonial cacao mikið magn næringarefna og virkra plöntuefna sem geta haft áhrif á bæði líkama og huga.
Theobromine — mild orka fyrir hjartað
Eitt helsta virka efnið í cacao er theobromine.
Það er náttúrulegt örvandi efni sem tilheyrir sömu fjölskyldu og koffín, en hefur mun mýkri áhrif á líkamann.
Theobromine getur meðal annars:
— aukið blóðflæði
— stuðlað að meiri einbeitingu
— gefið mjúka og stöðuga orku
— hjálpað líkamanum að slaka á á sama tíma
Margir upplifa cacao því mjög öðruvísi en kaffi. Orkan verður oft hlýrri, mýkri og minna stressandi fyrir taugakerfið.
Cacao og „ástarefnin“ í heilanum
Cacao inniheldur náttúruleg efni sem tengjast vellíðan, tengingu og gleði. Þess vegna tala margir um cacao sem „hjartaopnandi“ drykk.
Phenylethylamine (PEA)
Eitt þekktasta efnið í cacao er Phenylethylamine, oft kallað „ástarefnið“. Líkaminn framleiðir einnig þetta efni þegar við verðum ástfangin.
PEA tengist meðal annars:
— gleði
— spennu
— aukinni tengingu
— tilfinningu fyrir ást og vellíðan
Anandamide — „bliss molecule“
Cacao inniheldur einnig efnið Anandamide, sem stundum er kallað „bliss molecule“ eða sæluefnið. Orðið kemur úr sanskrít orðinu ananda sem þýðir gleði eða sæla.
Anandamide tengist:
— vellíðan
— ró
— ánægjutilfinningu
— meiri nærveru
Tryptophan og serótónín
Í cacao er einnig að finna amínósýruna tryptophan, sem líkaminn notar til að framleiða serótónín.
Serótónín tengist meðal annars:
— jafnvægi í skapi
— ró
— vellíðan
— betri svefni
Náttúrulegur stuðningur við vellíðan
Cacao „framleiðir“ ekki sjálft serótónín eða dópamín, en inniheldur efni sem geta stutt þau ferli í líkamanum sem tengjast þessum mikilvægu boðefnum. Þess vegna upplifa margir cacao sem hlýjan, opnandi og djúpt nærandi drykk — bæði líkamlega og andlega.
Magnesiumríkt ofurfæða
Cacao er einnig ríkt af steinefnum, sérstaklega magnesíum.
Magnesíum styður meðal annars:
— taugakerfið
— slökun í vöðvum
— svefn
— orkuframleiðslu
— hormónajafnvægi
Margir eru með lágt magn af magnesíum í dag vegna streitu, álags og næringarsnauðs mataræðis, þannig að cacao getur verið falleg leið til að næra líkamann á náttúrulegan hátt.
Önnur næringarefni í cacao
Hrátt cacao inniheldur einnig:
— járn
— sink
— kopar
— andoxunarefni
— flavonoids sem geta stutt hjarta- og æðakerfið
Rannsóknir benda til að flavonoids í cacao geti meðal annars stutt:
— blóðflæði
— hjartaheilsu
— heilastarfsemi
— minni bólgur í líkamanum
Hvenær er best að drekka cacao
Það fer svolítið eftir því hver tilgangurinn er, viljum við byrja daginn á bolla fyrir okkur sjálf og setja okkur ásetning inn í daginn eða er tilgangurinn annar. Margir byrja daginn á að drekka cacao í stað kaffis til þess að upplifa mýkri og rólegri orku yfir daginn.
Fyrir jóga eða hugleiðslu
Cacao getur hjálpað fólki að komast betur í tengingu við líkamann og núvitund.
Í rólegri kvöldstund
Minni skammtar af cacao geta verið notaðir sem hlý og nærandi kvöldrútína en alls ekki ráðlagt fyrir þá sem eru viðkvæmir fyrir eða glíma við svefnvandamál. Hins vegar getur ceremonial cacao verið örvandi fyrir suma, þannig að mjög stórir skammtar seint á kvöldin henta alls ekki öllum.
Hvað er cacao seremónía?
Cacao seremónía er ekki um fullkomnun eða reglur hvernig seremónía á að vera, heldur snýst hún um nærveru og tengingu bæði inná við og við annað fólk ef þú ert að drekka cacao í hóp. Þú getur drukkið þinn bolla með þínum eigin ásetning. Ég mæli með að setja á fallega tónlist, því cacao er einstaklega móttækilegt fyrir orkunni sem kemur frá fallegri tónlist, blessa bollann þinn og hvísla í hann falleg orð og hverju þú þarft á að halda eða hverju þú leitar að.
Margir nota cacao sem leið til að:
— hægja á sér
— opna hjartað
— tengjast tilfinningum sínum
— setja sér ásetning
— hugleiða
— syngja
— dansa
— skrifa í dagbók
— tengjast öðrum í samfélagi
Seremónían getur verið einföld og geranleg fyrir alla:
Það er einfaldlega nóg að sitja í kyrrð með bolla af cacao og anda djúpt. Svo eru til stærri leiddar upplifanir þar sem spiluð er tónlist, farið er saman í gengum hugleiðslu, yoga nidra, öndunaræfingar eða hring þar sem fólk kemur saman og nýtur þess að drekka þetta náttúru meðal frá móður jörð, sem cacao er oft kallað.
Meira en bara drykkur
Fyrir marga verður cacao ekki bara heitur drykkur — heldur ritual.
Stund til að staldra við í hraða dagsins og tengjast sjálfum sér aftur og aftur. Í heimi þar sem margir lifa í streitu og sífelldri örvun getur cacao minnt okkur á eitthvað mjög einfalt eins og að mýkjast, að anda og opna hjartað aðeins meira svo lífið verði betra.
21.05.2026

Eplaedik hefur verið notað í þúsundir ára sem náttúrulegt lækningarefni og hluti af daglegu mataræði. Það er framleitt úr gerjuðum eplum, þar sem náttúrulegur sykur breytist fyrst í áfengi og síðan í edikssýru með hjálp góðgerla. Þessi tvöfalda gerjun gerir eplaedik einstakt: það sameinar virkni ávaxta, ensíma, lífvirkra efna og örvera sem hafa áhrif á meltingu, efnaskipti og almenna heilsu. Rannsóknir sýna að regluleg notkun eplaediks getur haft jákvæð áhrif á blóðsykur, hjarta- og æðakerfi, meltingu, þarmaflóru, húð og jafnvel andlega heilsu.
Efnainnihald og virk efni
Helstu virku efnin í eplaediki eru edikssýra, fjölfenólar, náttúruleg ensím og probiotics. Edikssýra hefur bakteríudrepandi áhrif og hjálpar líkamanum að viðhalda jafnvægi í blóðsykri og sýrustigi. Fjölfenólar eru öflug andoxunarefni sem draga úr bólgum og vernda frumur gegn oxunarálagi. Þegar eplaedik er ógerilsneytt og inniheldur svokallaða „móður“ (mother of vinegar), þá inniheldur það einnig probiotics – góðgerla sem styðja við meltingu og þarmaflóru. Þessi lifandi gerlar og ensím hjálpa líkamanum að brjóta niður fæðu og auka upptöku næringarefna.
Áhrif á meltingu og örveruflóru
Eplaedik hefur bein áhrif á meltingarkerfið. Edikssýran eykur framleiðslu magasýru og hjálpar þannig til við niðurbrot próteina. Hún örvar einnig seytingu meltingarensíma og getur dregið úr uppþembu og óþægindum eftir máltíð. Probiotics í ógerilsneyddu eplaediki stuðla að heilbrigðri örveruflóru og auka fjölbreytni bakteríusamfélagsins í meltingu. Fjölfenólar úr eplum virka sem prebiotics, þ.e. sem næring fyrir góðgerla, og saman mynda þessi efni umhverfi sem styrkir þarmaveggi og bætir upptöku næringarefna. Fyrir fólk með skerta meltingu eða lága magasýru getur teskeið af eplaediki í vatni fyrir máltíð hjálpað til við að virkja meltinguna á náttúrulegan hátt.
Áhrif á blóðsykur og efnaskipti
Ein best staðfesta virkni eplaediks er áhrif þess á blóðsykur og insúlínnæmi. Edikssýran hægir á niðurbroti kolvetna í meltingarvegi og dregur þannig úr blóðsykurhækkun eftir máltíð. Þetta getur verið sérstaklega gagnlegt fyrir einstaklinga með insúlínviðnám, efnaskiptavillu eða sykursýki af tegund 2. Rannsóknir sýna að inntaka tveggja teskeiða af eplaediki fyrir kolvetnaríka máltíð getur lækkað blóðsykur um allt að 20–30%. Regluleg notkun getur einnig bætt mettunartilfinningu, minnkað matarlyst og stutt við þyngdarstjórnun.
Áhrif á bólgur, hjarta og æðar
Fjölfenólar og edikssýra í eplaediki geta haft bólgueyðandi og blóðfitulækkandi áhrif. Þau draga úr oxun LDL-kólesteróls, sem minnkar hættu á æðakölkun, og geta bætt blóðflæði með því að slaka á æðaveggjum. Sumar rannsóknir benda til þess að regluleg notkun eplaediks geti lækkað bæði þríglýseríð og heildarkólesteról og aukið HDL („góða“) kólesterólið. Þannig getur eplaedik verið einfalt náttúrulegt viðbótarefni fyrir hjartaheilsu, þó það eigi ekki að koma í stað lyfjameðferðar.
Áhrif á húð, háls og ónæmiskerfi
Eplaedik hefur náttúrulega bakteríudrepandi eiginleika og er því notað bæði innvortis og útvortis. Utan frá getur það hjálpað við sveppasýkingar, bólur og flösu þegar það er þynnt í vatni. Innvortis
styður það við hreinsun líkamans með því að örva lifur og nýru og bæta sýrustig líkamans. Garglað í eplaedikblöndu (1 msk í vatn) getur hjálpað við hálsbólgu, og þynnt eplaediklausn getur dregið úr líkamslykt þar sem það jafnar sýrustig húðar.
Áhrif á andlega og taugafræðilega heilsu
Meltingarflóra og taugakerfi eru nátengd í gegnum svokallaða gut-brain axis. Eplaedik hefur áhrif á þessa tengingu með því að styðja við örverujafnvægi og auka framleiðslu taugaboðefna óbeint. Probiotics í ógerilsneyddu eplaediki geta haft áhrif á framleiðslu serótóníns og GABA – efna sem stuðla að ró og tilfinningalegu jafnvægi. Fjölfenólar úr eplum draga úr oxunarálagi í heila og geta dregið úr streitueinkennum. Sumar rannsóknir benda til þess að regluleg notkun eplaediks geti haft jákvæð áhrif á orku, andlega einbeitingu og jafnvel svefn með því að stilla blóðsykur og hormónasvörun líkamans.
Hagnýt notkun og skammtar
Flestir nota eplaedik þynnt í vatni, annaðhvort á morgnana eða fyrir máltíðir. Algengasta blanda er 1–2 teskeiðar í glasi af vatni, 1–2 sinnum á dag. Fyrir viðkvæma meltingu er gott að byrja á minni skammti og auka smám saman. Eplaedik má einnig nota í salatsósur eða drykki, og til útvortis notkunar er það alltaf þynnt – til dæmis í hlutfallinu 1:3 við vatn.
Varúð og gæðaviðmið
Ekki ætti að neyta eplaediks óþynnts, þar sem súran getur ert slímhúð og tennur. Best er að nota glerglas og skola munninn eftir inntöku. Fólk með sýrurflæði, magasár eða lágan blóðþrýsting
ætti að ráðfæra sig við lækni áður en regluleg notkun hefst. Veldu alltaf ógerilsneytt, lífrænt eplaedik með móður (mother of vinegar), þar sem það inniheldur probiotics og náttúruleg ensím.
Heimildir
Journal of Functional Foods (2020): Biological effects of acetic acid on metabolism and gut health. Nutrients (2021): Apple cider vinegar and glycemic control – systematic review. Frontiers in Nutrition (2020): The gut-brain axis and fermented foods. Bioscience, Biotechnology and Biochemistry (2019): Polyphenols in apple cider vinegar and antioxidant properties.
Phytotherapy Research (2021): Antimicrobial and anti-inflammatory effects of vinegar. American Journal of Clinical Nutrition (2020): Role of fermented foods in human health.